HÖNNUN OG SMÍÐI

Hjá Lexus er litið á alla endingarhringrás bifreiðar til að hjálpa til við að mæla heildaráhrif hennar á umhverfið með tilliti til efna, mengunar og loka líftíma.

Lexus er í fararbroddi í notkun há-endurnýtanlegra efna, rannsókna, og í notkun hluta sem auðvelt er að endurvinna þegar þeir hafa lokið hlutverki sínu, til að auðvelda endurvinnslu og endurheimt. Jafnvel þeir hlutar Lexus sem síst sjást eru hannaðir með þetta í huga: endurunnir stuðarar eru notaðir til að gera úr klæðningar í farangursrýminu og endurunnið, tætt hjóðeinangrunarefni er notað í hljóðdeyfinn á bak við mælaborðið.

Hurðaklæðningar eru nú gerðar úr stilkum kenaf - jurtar af læknakólfaætt - frekar en úr viðarflísum sem áður voru notaðar. Kenaf tekur í sig milli tvisvar og fimm sinnum meiri koltvísýring en aðrar plöntur og er blandað gömlum úrgangsstuðurum frá verkstæðum til að gera hurðaklæðningar sem eru léttari, hljóðeinangra betur og nota efni sem ganga ekki á skógana.

Aftur í Umhverfi
top image
top image