LF-C

SLÁANDI, ÁGENGUR, FRAMÚRSTEFNULEGUR

Ytra útlit LF-C gefur til kynna örugga stöðu og og litla skögun, með stórri drifundirstöðu að aftan. Hún nýtir háafkasta V8 vél sem sett er upp að framan og sex-hraða raðskiptan, sjálfvirkan gírkassa. Bifreiðin, sem hefur ágenga stöðu með ríflegum stærðum, rúmar þægilega fjóra fullorðna farþega. Eitt markverðasta atriðið í innréttingunni er miðborðið, sem sett er saman úr hörðu gegnsæju efni, hannað til að líkjast kristal eða stórum útskornum ísklumpi. Það byrjar undir mælaborðinu og flæðir niður á við og sveigir síðan smátt og smátt aftur í átt að farþegarýminu milli sætanna. Mælar og stjórntæki undir gegnsæja borðinu skapa hátækniyfirbragð.